Steinunn Thorlacius lauk meistaranámi í heildrænni sálfræði þar sem áhersla var á partasálfræði, djúpsálfræði og líkamsmiðaða nálgun í allri meðferð. Námið var að hluta til byggt á listrænni meðferð (Tamalpa style) þar sem dans, myndlist og skapandi skrif voru í stóru hlutverki. Áður hafði hún lokið BA námi í sálfræði hér heima.
Steinunn hefur sérhæft sig í líkamsmiðaðri meðferð. Hún lauk þriggja ára faglegri þjálfun í áfallameðferðinni Somatic Experiencing á vegum Peter Levine. Hún hefur sérhæft sig í að vinna með flókin áföll og þroskaáföll (e. complex PTSD, developmental trauma) með aðferð sem heitir NeuroAffective touch og einnig hefur hún sótt námskeið í höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð.
Meðfram meðferðarstörfum stundar hún nám í líkamsmiðaðri listrænni tjáningu (Somatic Expressive Arts Therapy) hjá Tamalpa UK og stefnir á að klára námið í lok ársins 2026.
Frá árinu 2005 hefur hún reglulega dvalið í Indlandi og Thailandi þar sem hún hefur hlotið kennaraþjálfun í Tao Tantric Arts og yoga.
Unnur Edda Garðarsdóttir er fjölskyldufræðingur, mannfræðingur, kennari og doktorsnemi þar sem rannsóknarefni hennar er ástin og ástarsambönd. Hún hefur mikinn áhuga á valdeflandi nálgun í sambandi meðferðaraðila og skjólstæðings og leggur áherslu á líkamsmiðaða og áfalla-meðvitaða meðferðarvinnu.
Unnur hefur nýlega hafið meðferðarstöf að nýju eftir námsleyfi.

