Hér fyrir neðan má sjá stutta umfjöllun um þær meðferðir sem ég býð upp á.

Ekki er þörf á að ákveða fyrirfram hvaða meðferðarnálgun er óskað eftir heldur ræðum við saman og finnum hvað hentar best.

Verð:

60 mín: 20.000,-

90 mín: 28.000,-

Samtalsmeðferð getur farið fram í gegnum fjarbúnað og velkomið að óska eftir slíku hvenær sem er.

Somatic Experiencing var þróuð af Dr. Peter Levine, sem oft er kallaður faðir áfallameðferðar. Meðferðin fer að miklu leyti fram í gegnum samtal þar sem einstaklingur fær rými til að kynnast og tengjast líkamsvisku sinni og losa um djúpa spennu í taugakerfi sínu á öruggan hátt. Steinunn, SEP, hefur lokið þriggja ára faglegri þjálfun í faginu.

Meðferðir

NeuroAffective Touch var þróuð af Dr. Aline LaPierre og fer fram á nuddbekk. Meðferðin var þróuð með þroskaáföll í huga og byggist á því að tiltekin snerting geti örvað myndun nýrra taugabrauta þökk sé eðlislægum mótanleika heila og taugakerfisins. Um er að ræða samþættingu snertingar og samtals. Steinunn hefur útskrifast úr 6 mánaða faglegri þjálfun í faginu.

Meðferðir

Höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð er mjúk og endurnærandi meðferð og byggist á léttri snertingu og samtali þar sem skjólstæðingur hvílir á nuddbekk. Merðferðin snýst um að virkja náttúrulegan mátt líkamans til að finna og viðhalda jafnvægi á líkama og sál. Steinunn hefur lokið fjórum námskeiðum í faginu.

Meðferðir

IFS / Partasálfræði: Innra með hverjum og einum eru ólíkar hliðar sem hafa áhrif á líðan og hegðun. Sumir þessara parta halda í streitu eða gömul sár á meðan aðrar búa yfir ró og styrk. Meðferðin snýst um að skapa betra jafnvægi á milli þessara parta, losa um það sem heldur aftur af okkur og efla okkar náttúrulega ástand sem er vellíðan, skýrleiki og innri ró. Mögulegt er að vinna þessa meðferð í gegnum samtal, snertingu á nuddbekk eða með skapandi aðferðum (listræn meðferð og leikfanga meðferð/sand tray play therapy.)

Meistaranám Steinunnar var byggt á partasálfræði og hefur hún lokið fimm daga námskeiði, „40 hour Intensive Training,“ í IFS hér á landi ásamt nokkrum sérhæfðum IFS námskeiðum.

Meðferðir

Meðferðir
Hafðu samband

Sendu mér skilaboð og ég hef samband eins fljótt og hægt er.

Start typing and press Enter to search